LJÓSAGANGA GEGN KYNBUNDNU OFBELDI

 

Ljósaganga 1. des. 2022

Fimmtudaginn 1. desember kl. 16:30, fer fram ljósaganga í tilefni 16 daga átaks gegn kynbundu ofbeldi. Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi má rekja aftur til ársins 1991. Dagsetning átaksins var valin til að tengja á táknrænan hátt kynbundið ofbeldi og mannréttindi. Þann 25. nóvember er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum og 10. desember er hinn alþjóðlegi mannréttindadagur. Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls kynbundins ofbeldis.

Gengið verður frá Zontahúsinu, Aðalstræti 54, og að Bjarmahlíð, Aðalstræti 14, þar sem Bjarney Rún Haraldsdóttir, teymisstjóri Bjarmahlíðar, flytur stutt erindi.

Að göngunni standa Soroptimistaklúbbur Akureyrar, Zontaklúbbur Akureyrar og Zontaklúbburinn Þórunn hyrna ásamt nemendafélögum Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri.

∞∞

Við hvetjum alla til að mæta og ganga saman gegn ofbeldi.


Nánar um viðburð

  • Date: