Í klúbbnum eru nú 26 félagar. Fundir eru haldnir þriðja miðvikudag hvers mánaðar frá september til maí og eru flestir haldnir í Zontahúsinu, Aðalstræti 54, hefjast kl. 19:30 og lýkur kl. 21:30 nema janúarfundurinn sem hefst kl. 11 á sunnudegi um miðjan janúar og febrúarfundur haldinn á vinnustað einhvers félagans.
Árgjald starfsársins 2026-2027 er 22.000 kr. og er greitt í maí auk þess sem á hverjum fundi er greitt 2.000 kr. fyrir kaffi og happadrætti.
Klúbburinn starfar samkvæmt lögum Zonta International og íslensk þýðing laganna er hér.
Starfið í klúbbnum, fundir
Á fyrsta fundi starfsársins er farið yfir nýliðið sumar og hugað að dagskrá vetrarins. Stundum koma félagar með hugmyndir sem stjórnin velur úr sem atriði á fundi vetrarins. Í október ár hvert er sameiginlegur fundur með Zontaklúbbnum Þórunni hyrnu sem líka starfar á Akureyri. Þá er farið yfir sameiginleg verkefni klúbbanna og sagðar fréttir af heimsþingi eða umdæmisþingi og því sem þar þótti markverðast. Stundum slær svæðisstjórinn tvær flugur í einu höggi og heimsækir báða klúbbana í einu og venjulega er farið yfir það helsta sem kom fram á formannafundi svæðisins sem þá er nýlokið. Nóvemberfundur tengist venjulega verkefnum klúbbsins og á jólafundi er sungið, gefnar gjafir og borðaður jólamatur. Janúarfundurinn er haldinn um hádegisbil á sunnudegi um miðjan janúar og snæddur dagverður. Einn fundur, oftast febrúarfundur, er haldinn á vinnustað einhvers félagans sem kynnir starf sitt og vinnustað. Árið 2020 var Skógarlundur, miðstöð virkni og hæfingar, heimsóttur og forstöðumaðurinn Margrét I. Ríkarðsdóttir sagði frá starfi sínu og árið 2022 heimsóttum við Íslenskar orkurannsóknir og Anett Blischke jarð- og jarðeðlisfræðingur sýndi okkur það sem leynist undir yfirborðinu og síðast, árið 2026, heimsóttum við Dýrey – Dýralæknaþjónustu Eyjafjarðar og Aðalbjörg Jónsdóttir dýralæknir sýndi okkur nýju aðstöðuna sem hentar jafnt stórum sem smáum dýrum. Aprílfundur er fyrri hluti aðalfundar og kjörnefnd kynnir tillögu sína að stjórn næsta starfsárs. Á maífundi, sem stundum er haldinn á veitingahúsi, er farið yfir starfið og ársreikningur klúbbsins kynntur, farið yfir verkefni sumarsins og ný stjórn tekur við. Sumarið 2025 var tekin upp sú nýbreytni að nefndir nýliðins starfsárs störfuðu um sumarið en nýjar nefndir tækju við um leið og vetrarstarfið hæfist.
Nonnahús – heimaverkefni til ársins 2007
Árið 1949, þegar klúbburinn var stofnaður, voru í honum 15 konur. Félagar voru lengi vel 18-20 talsins, árið 1975 hafði fjölgað í 29 félaga og árið 1984 eru 36 í klúbbnum en síðan hafa félagar verið eitthvað á fjórða tuginn, flestir 42 en fækkað svo aftur. Heimaverkefni klúbbsins frá því skömmu eftir stofnun hans var að halda á lofti minningu barnabókahöfundarins og jesúítaprestsins Jóns Sveinssonar, Nonna. Klúbburinn eignaðist æskuheimili Nonna og opnaði þar safn um hann, Nonnahús – minjasafn, þann 16. nóvember 1957, en þá voru liðin 100 ár frá fæðingu Nonna. Klúbburinn rak safnið í 50 ár en færði Akureyrarbæ það að gjöf í desember 2007 og sér Minjasafnið á Akureyri um rekstur þess.
Íslenska með Zonta – heimaverkefni sem hófst árið 2015
Íslenska með Zonta er íslenskunámskeið fyrir erlendar konur á Akureyri og nágrenni, einkum konur sem eru barnshafandi eða með ung börn. Starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Akureyri í mæðra- og ungbarnavernd benda skjólstæðingum sínum á námskeiðið sem SÍMEY, símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, sér um. Það var zontakonan og kennarinn Sólveig Jónsdóttir sem þróaði námsefnið og kenndi námskeiðið í byrjun. Námskeiðið er nú haldið í fjórða sinn og þykir gott. Það er kennt á daginn og tekur 60 kennslustundir. Lögð er áhersla á talað mál til notkunar við dagleg störf og útréttingar en allir þættir tungumálsins eru þjálfaðir. Klúbburinn greiðir námskeiðsgjaldið fyrir nemendurna.
Vegna námskeiðs á haustönn 2022 fékk klúbburinn styrk frá Norðurorku til viðbótar við það sem klúbburinn aflaði með fjáröflun.
Fjáröflun
Fundarsalur – veislusalur. Klúbburinn á hús, Zontahúsið í Aðalstræti 54 á Akureyri, þar sem á neðri hæð er fundarsalur, Zontasalurinn, þar sem flestir fundir klúbbsins og nefnda hans fara fram. Salurinn er þess á milli leigður út sem fundarsalur eða veislusalur og er það hluti af fjáröflun klúbbsins. Um útleigu sér húsnefnd klúbbsins.
Tengiliður vegna salarleigu er Árún K. Sigurðardóttir, formaður húsnefndar og tekur hún á móti pöntunum og veitir upplýsingar í netfanginu arun@simnet.is
Zontasalurinn er hlýlegur 30-40 manna salur í gamaldags stíl. Í salnum er borðbúnaður, matar- og kaffistell, fyrir 40 manns, skjávarpi, sýningartjald og nettenging um farsímakerfið.
Leiga á salnum fyrir fundi, námskeið og veislur:
Fyrir staka fundi …………………………. kr. 25.000-
Heill dagur, námskeið/ fundir …………. kr. 35.000-
Leiga fyrir veislur ……………………….. kr. 50.000-
Leiga fyrir félaga í Zontaklúbbi Akureyrar ….. kr. 8.000-
Leiga fyrir félaga í Z.kl. Þórunni hyrnu …….. kr. 10.000-
(Verðskrá þessi gildir frá 1. maí 2025)
Í risi hússins er lítil íbúð sem leigð er út og nýtast tekjur af útleigunni til greiðslu á kostnaði við rekstur hússins auk þess sem leigjandinn fylgist með því að allt sé í lagi og lætur vita þegar eitthvað fer úrskeiðis.
Blómasala – pottaplöntur og aðrar jurtir. Í maímánuði frá árinu 2020 hefur klúbburinn haldið blómasölu í Zontahúsinu og selt pottablóm af ýmsu tagi ásamt einstaka fjölærum garðplöntum, sumarblómum og matjurtum. Mikið af þeim plöntum sem við höfum selt höfum við rækað upp af afleggjurum og nýtt þannig rótarskot eða greinar af okkar eigin plöntum. Einnig hafa nokkrir félagar sáð fræi og alið upp matjurtir og sumarblóm. Fyrri hluta maí og fram að söludegi tökum við á móti plöntum frá fólki sem vill grisja hjá sér og gefa plöntur til styrktar góðum málefnum. Við auglýsum blómasöluna á facebooksíðu klúbbsins og látum vita af henni í facebookhópum um pottablóm og afleggjara þeirra.
Hvannskurður í Hrísey. Mörg undanfarin ár hefur klúbburinn farið til Hríseyjar að skera hvönn sem fyrirtækið Hrísiðn þurrkar og selur sem te eða til lyfjagerðar. Því hefur nú verið hætt.
Veitingar á mannfögnuðum. Á Akureyrarvöku í ágúst 2018 breyttist Zontasalurinn í kaffihús eitt laugardagssíðdegi og þar voru seldar eplabökur með þeyttum rjóma og kaffi þeim sem gerðu sér ferð í Innbæinn milli atriða hátíðarinnar. Kaffihúsið opnaði aftur á Akureyrarvöku sumarið 2019 en þá voru einnig seldir fínir kjólar í sölutjaldi framan við húsið. Sumrin 2020 og 2021 féll Akureyrarvaka niður vegna kórónuveirufaraldurs en kaffihúsið var haldið að nýju sumarið 2022. Zontakaffihús er orðinn fastur liður á laugardegi Akureyrarvöku og gott að slaka þar á yfir tertusneið og rjúkandi kaffi.
Fundir veturinn 2026-2027, hefjast kl. 19:30
16. sept. Vetrarstarfið
21. okt. Sameiginlegur með Zkl. Þórunni hyrnu
18. nóv. Alþjóðleg verkefni ZInt. og heimaverkefni ZA
9. des. Jólafundur
17. jan. sunnudagur kl. 11-13. Dögurðarfundur
17. feb. Vinnustaðarfundur
17. mars Þema
21. apríl Aðalfundur, fyrri hluti – nefndir og innra starf
19. maí Aðalfundur, seinni hluti
Stjórn starfsárið 2026-2027
Formaður – Eva Halapi
Varaformaður – Drífa Björk Radiskovic
Gjaldkeri – Jakobína Elva Káradóttir og Sólveig Eiríksdóttir
Ritari – Guðrún Þóra Gunnarsdóttir
Meðstjórnandi – Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir
Stallari – Kristjana Agnarsdóttir
Varastallari – Sigurbjörg Ólöf Bergsdóttir
Stjórnarfundir haldnir í vikunni fyrir fund.
Nefndir starfsárið 2026-2027
Fjáröflunarnefnd
Aðalbjörg Jónsdóttir, formaður
Annette J. de Vink
Ingibjörg Eyjólfsdóttir
Kristín List Malmberg
Kristjana Agnarsdóttir
Kristín Sigfúsdóttir
Margrét I. Ríkarðssdóttir
Ragnheiður Gestsdóttir
Húsnefnd (inni og úti)
Árún K. Sigurðardóttir, formaður
Arna Heiðmar Guðmundsdóttir
Fanney Hauksdóttir
Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir
Sigurbjörg Ólöf Bergsdóttir
Silja Jóhannesar Ástudóttir
Sólveig Eiríksdóttir
Þóra Ákadóttir
Valnefnd
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, formaður
Margrét Pétursdóttir
Jafnréttisnefnd
Halla Margrét Tryggvadóttir, form.
Laganefnd
Inga M. Árnadóttir
Skjalavörslunefnd
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, ritari ZA
Styrkjanefnd
Drífa Björk Radiskovic
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir
Kynningarnefnd
Silja Jóhannesar Ástudóttir, formaður
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
Skoðunarkonur reikninga
Þóra Ákadóttir
Kristín Sigfúsdóttir
Vefritari
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
Facebook síða
Óvíst hver
Facebookhópur: Innra starf-Zontaklúbbur Akureyrar
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
Eva Halapi
uppfært 4. október 2026 GGE















