AÐ VERÐA FÉLAGI

Leggðu þitt af mörkum til að efla og styrkja konur.

 

Kynningarfundur 26. október 2013. Nýir félagar gengu í klúbbinn árið 2014
Marsfundur 2022 hlýtt á erindi um loftslagsvá
Hlýtt á Auði H. Ingólfsdóttur fjalla um loftslagsvá og jafnrétti á marsfundi 2022

 

Síðasti kynningarfundur var haldinn laugardaginn 7. mars 2020

Zontaklúbbur Akureyrar hélt kynningarfund í Zontahúsinu, Aðalstræti 54 á Akureyri, laugardaginn 7. mars 2020 sem hófst kl. 11:30 og stóð til 13:15. Boðið var upp á súpu og brauð og á eftir kaffi og köku. 
Það var valnefnd klúbbsins ásamt stjórn sem heldur slíka fundi. Starf klúbbsins og Zontahreyfingarinnar er kynnt og sýnt hvernig Zontakonur vinna saman að því að bæta stöðu og réttindi kvenna jafnt heima sem um víða veröld.
Zontakonur mynda tengslanet og starfið innan hreyfingarinnar er bæði örvandi og fræðandi. Komdu á fund og kynntu þér starf Zonta.

Nánari upplýsingar veitir formaður valnefndar sjá hér að neðan.

 


 Ef þig langar til að verða félagi í Zontaklúbbi Akureyrar og taka þátt í starfi Zontahreyfingarinnar við að bæta hag kvenna um heim allan þá er best að hafa samband við klúbbinn. Það er valnefnd sem sinnir mannauðsstjórnun og tekur fagnandi þeim sem sýna þessu starfi áhuga (senda formanni valnefndar tölvuskeyti í netfangið: ingunnhelgab(hjá)gmail.com ). Klúbburinn leitar að nýjum félögum því við viljum fjölga í klúbbnum. Til að kynna starfið og Zontahreyfinguna heldur valnefnd ásamt stjórn klúbbsins einn kynningarfund á hverju starfsári, oftast í febrúar (þótt árin 2021 og 2022 hafi þeir fallið niður). Áhugasömum er í framhaldinu boðið á klúbbfundi til að kynnast því hvernig starfið gengur fyrir sig. Þegar stjórn klúbbsins samþykkir að bjóða nýjum félaga í klúbbinn þá er klúbbfélögum kynnt sú ákvörðun og síðan er nýja félaganum boðið að ganga í klúbbinn. Hann getur þá þegið boðið og verið tekinn í klúbbinn eða afþakkað. Við inngöngu er greitt inntökugjald sem er 15 USD nú um 1.850 kr. auk árgjalds sem er 20.000 kr. Á heimasíðu Zontahreyfingarinnar www.zonta.org er upplýsingabæklingur þar sem starfið er kynnt. Upplýsingabæklingur ZI á ensku er hér en íslensk kynning hér.

Ef félagar þurfa að hætta í klúbbnum er það tiltölulega einfalt. Þeir þurfa að vera skuldlausir við klúbbinn og tilkynna formanni skriflega að þeir hyggist hætta. Best er að hætta í lok starfsárs, þann 31. maí en tilkynna það í apríl áður en árgjald næsta árs er greitt.

Valnefnd 

Ingunn Helga Bjarnadóttir, formaður – ingunnhelgab(hjá)gmail.com 
Klara S. Sigurðardóttir
Anna G. Thorarensen
Margrét I. Ríkarðsdóttir

Zontaklúbbur Akureyrar varð sjötíu og tveggja ára í sumar, stofnaður 1949, reyndur klúbbur sem starfar af krafti. Aldursdreifingin er víð og nokkuð jöfn og er elsti félaginn fæddur árið 1942 en sá yngsti árið 1972.

Útifundur í apríl 2021
Aprílfundur 2021 var göngufundur vegna Covid takmarkana.
Copyright © 2023, Zonta International - District 13.